Vatnasvæði Kolku í Skagafirði eru árnar Haltadalsá og Kolbeinsdalsá auk Kolku sjálfrar, en það heita árnar eftir að þær sameinast um 6 km frá ósi. Árnar eru jökulskotnar dragár og geta hlaupið í rigningu og miklum hlýindum. Sjaldnast verða þær þó svo litaðar að hamli veiðum að ráði. Algengt sumarrennsli í Hjaltadalsá er 10-15 m3. Oft eru góðar sjóbleikjugöngur í árnar og hefur meðalveiðin síðustu árin verið á milli 300 til 500 bleikjur yfir sumarið og nokkrir tugir laxa. Þá veiðist ávallt eitthvað af sjóbirtingi til viðbótar.
Veiðistaðir dreifast um vatnakerfið, langt inn eftir Hjaltadal og upp að stíflu í Kolbeinsdalsánni, sem gerð var árið 1985 í kjölfarið á virkjun við Sleitustaði og takmarkar frekari fiskgengd upp ána. Báðar árnar eru straumharðar með köflum og voru miklir farartálmar áður en þær voru brúaðar. Sameinast þær svo nokkrum kílómetrum frá sjó og heita þá Kolka, og renna í hinn sögufræga Kolkuós sem eitt sinn var verslunarstaður og á því svæði eru fimm merktir veiðistaðir
20. júní – 20. september
Til og með 15. ágúst er veiðitíminn frá kl. 7-13 og 16-22. Frá 15. ágúst til 20. september er veiðitíminn frá kl. 7-13 og 15-21.
Fluga, maðkur og spónn
Heimilt er að hirða 6 fiska á vakt eða 12 fiska á dag.
Við Efri-Ás er ágætis veiðihús sem fylgir leyfum. Þar er svefnpláss fyrir 8 manns, í tveimur svefnherbergjum og á svefnlofti.
Hjaltadalsá og Kolka er um 300 km frá Reykjavík. Ekið er hjá Varmahlíð í Skagafirði og í áttina að Akureyri. Skömmu eftir brýrnar yfir Héraðsvötn er beygt til vinstri (norður) - þar er skilti sem merkt er Hofsós-Siglufjörður.
Frá Akureyri eru 120 km og er ekið sem leið liggur Öxnadalsheiði í átt til Varmahlíðar, beygt er til hægri við skiltið sem merkt er Hofsós-Siglufjörður, rétt áður en kemur að brúnni yfir Héraðsvötn.
Frá Siglufirði eru um 75 km og er ekið um Strákagöng frá Siglufirði, vestur um Fljót og suður fyrir Hofsós.
Ekin er vegur 76 þar til komið er að skiltinu ,,Heim að Hólum”. Þar er beygt upp Hjaltadal og ekið áfram þar til komið er að brú yfir Hjaltadalsá. Veiðihúsið stendur við Efri-Ás.
Göngum vel um ánna og lífríki hennar. Akstur utan slóða er ekki leyfilegur.
Alla veiði á að færa í veiðibækur, annaðhvort þá sem er í veiðihúsinu eða þá rafrænu.
Stangveiðifélag Siglurfjarðar