Veiðimenn skulu gefa sig fram í Keldunesi áður en veiði hefst.
Í lok veiðidags skal skrá veiði dagsins í veiðibók sem liggur frammi í Keldunesi.
Eingöngu veitt á flugu og öllu fiski skal sleppt.
5 stangir eru í Litluá og 2 stangir í Skjálftavatni.
Veiðitímabilið er 1. apríl - 10. október.
Frá 1. apríl til 30. apríl er veiðitími 09:00 - 21:00
Frá 1. maí til 15. september er veiðitími 07:00 - 13:00 og 16:00 - 22:00, seinni vaktin með +/-3 klst. sveigjanleika (heild 6 tímar).
Frá 16. september til 10. október er veiðitími: 08:00 - 20:00
Ekkert veiðihús er við ána en veiðimönnum er bent á gistihúsið í Keldunesi (www.keldunes.is), ferðaþjónustuna í Skúlagarði og bændagistingu í sveitinni. Frá gistihúsinu í Keldunesi þarf ekki einu sinni að keyra út á þjóðveg til að fara að Litluá. Þarna má finna heitan pott, 6 tveggja manna herbergi með uppábúnum rúmum. Notaleg borðstofa og sjónvarpsstofa ásamt mjög góðri eldunaraðstöðu. Valkostur er að kaupa tilbúnar máltíðir. Einnig eru nokkur stök smáhýsi hluti af ferðaþjónustunni í Keldunesi.
Í félagsheimilinu Skúlagarði er einnig rekin ferðaþjónusta með gistingu og veitingum.
Í sveitinni er auk þess bændagisting á nokkrum bæjum.
Óheimilt er að aka bifreiðum utan vegaslóða, yfir gróið land, eða þar sem skemmdir geta hlotist af. Öll meðferð skotvopna er stranglega bönnuð. Þegar tveir eru um stöng, skulu þeir vera á sama veiðisvæði og einungis annar má veiða í einu. Sé brotið gegn einhverri af framangreindur reglum, eða óleyfilegt agn notað, varðar það tafarlausum brottrekstri úr ánni, bótalaust.
Black Ghost, Dentist, Heimasæta, Dýrbítur, ýmsir Nobblerar, púpur, lirfueftirlíkingar og þurrflugur.
Veiðileyfi skal bera á sér við veiðarnar og sýna veiðiverði, sé þess óskað. Eingöngu er leyft að veiða á flugu samkvæmt veiða/sleppa aðferð.
Veiðiverði er heimilt að skoða veiðarfæri og sjá til þess að ofangreindum reglum sé framfylgt. Veiðimenn eru beðnir um að ganga vel um og sýna snyrtimennsku við ána, fleygja ekki rusli og skilja ekki girni, umbúðir né annan úrgang eftir á bökkum hennar.