Á Grímstunguheiði má finna afar fjölbreytta og skemmtilega
veiðimöguleika. Samanlögð bakkalengd ársvæða á heiðinni er rúmlega 200km. Efri hluti Vatnsdalsár er vatnsmestur og þar
veiðast gjarnan stærstu fiskarnir. Veiða má Vatnsdalsá ofan fossaraðarinnar
Rjúkanda, Kerafoss og Skínanda. Í
kvíslunum sem mynda Vatnsdalsá má einnig gera góða veiði og hefur Strangakvísl
oft gefið vel. Einnig er fiskur í Þjófakvísl, Miðkvísl og Kolkukvísl.
Refkelsvatn, Galtavatn og Þórarinsvatn gefa oft góða veiði. Fiskurinn er í
vötnunum er vænn, meðalþyngd 2.5-3 pund.
Fjöldi annarra vatna er á heiðinni og fiskur í þeim flestum.
Leyfð er veiði með 8 stöngum á heiðinni. Kaupa þarf í það minnsta leyfi fyrir 5 stöngum
og hafa menn þá svæðið fyrir sig. Heimilt
er að deila stöngum og er gistipláss fyrir allt að 14 manns (kojur) í skálanum.
8 stangir eru leyfðar á svæðinu.
Í ánum má aðeins veiða með flugu og þar skal öllum fiski sleppt.
Í vötnum má veiða með flugu og spún, þar má taka 3 fiska á dag undir 50 cm.
Veiðitími frá kl 15-21 á komudag og 7-13 morguninn eftir (hálfur - hálfur).
Veiðileyfum fylgir gisting í Öldumóðuskála nóttina fyrir
veiði. Þar er um að ræða fjallaskála. Skálinn er hitaður með gasi. Þar eru
gashellur og rennandi vatn í eldhúsi og vatnssalerni. Tólf kojur eru í skálanum
og fylgir eitt rúm hverju seldu leyfi.
Veiðimenn koma sjálfir með salernispappír, tuskur til þrifa,
uppþvottalög, svefnpoka og annað.
Í skálanum má finna potta, pönnur, bolla, glös, hnífapör,
diska og skálar. Kolagrill er á staðnum og þurfa menn að mæta sjálfir með kol
ef stendur til að nota það.
Sjö kojur eru í skálanum og því svefnpláss fyrir allt að 14
manns.
Lítil rafstöð er við húsið sem hægt er að nota til að knýja
rafmagnsofna í húsinu og hlaða lítil raftæki. Rafstöðin er bensínknúin og þurfa
veiðimenn að mæta sjálfir með bensín á brúsa ef stendur til að nota rafstöðina.
Vinsamlega gangið vel um skálann. Látið vita ef gas er að
klárast.
Ganga skal vel frá og þrífa skála að dvöl lokinni.
Vegalengd frá Reykjavík að Öldumóðuskála er u.þ.b. 260km.
Frá Reykjavík er þjóðvegur 1 ekinn í norðurátt þar til komið
er að Vatnsdalsá. Ekið er yfir Vatnsdalsá og svo tekin beygja inn Vatnsdalsveg
(Nr. 722). Allur Vatnsdalurinn er ekinn
austan Vatnsdalsár þar til komið er að Álftaskálará. Rétt áður en komið er að
Álftaskálará sést vegur sem liggur upp á fjallið og inn á Grímstunguheiði. Sá
vegur er ekinn þar til komið er að Öldumóðuskála.
Ágætur vegur er að Öldumóðuskála. Slóðar frá skálar að vatnasvæðum eru ekki góðir og krefjast 33" dekkja og að ekið sé varfærnislega. Menn og tæki eru á eigin ábyrgð sé haldið á slóðana. Allur utanvegaakstur er bannaður.